|
Monday, November 24, 2008
Það eru allir að mótmæla í dag. Það er eins og það sé hálfpartinn í tísku. Auðvitað eru mótmælin mjög skiljanleg hjá ákveðnum hópi fólks. Ég og Friðjón fórum að mótmæla síðustu helgi, eða réttara sagt stóðum aftast og reyndum að láta lítið fyrir okkur fara. Við vorum semsagt bara að fylgjast með, eins og fjölmargir aðrir. Hörður Torfa minnti stundum á Hitler í hreyfingum sínum og áherslum. Fólkið öskraði á móti og púaði á ráðamenn sem létu ekki sjá sig. Sumum var heitt í hamsi á meðan aðrir glottu. Sérstök stemning sem verður þó fljótt gleymt. Fórum svo fljótlega í Kolaportið að skoða ódýrt drasl.
Nóg að gera næstu vikuna, næst síðasta vikan í skólanum! Svo er opnun á sýningu, frumsýning á heimildarmynd sem ég er að fara að klippa á eftir með hópfélögum. Er rosalega spennt að fara að vinna svona mynd í fyrsta skiptið. Próf og læti og svo allt í einu get ég sagt ykkur að jólin eru bara komin. Þá tekur við leti eða svona "það sem mér sýnist" að gera tímabil, skrifa greinar eða syngja og eitthvað.
Það er sko enginn að fara að mótmæla því...
Posted at 01:37 pm by rosin
 |  |  | Name November 27, 2008 01:44 AM PST
Auðvitað á maður að hætta að reykja. Ekki spurning. En þegar ástandið er svona þá verður fólk stressaðra yfir hlutum og þá ganga þeir hlutir ekki upp eins og maður vildi. Þ.A.E.S. að hætta.
Þetta er allt spurning um vilja og þegar hann er ekki upp á marga fiska þá er þetta erfitt. Þegar maður sér ekki fram á neitt. Það er slæmt. Í öllu falli get ég skrautskrifað jólagjafir. Það er lítið mál. En það er erfitt að hlusta á börnin sín biðja um ákveðna hluti í jólagjöf. Reyndar eru Saga og Lea hógværar. Ég segi ekki meir um þetta. En það eru fleiri en þær.
Það eru sumir geðsjúkir einstaklingar í þjóðfélaginu sem vilja meira fyrir börnin sín. Og þannig er nú lífið.
En þar sem við erum heilbrigð og ennþá á lífi þá vona ég að þetta hafist. Nú ef ekki, þá verða börnin að sætta sig við það. Málið er nefnilega ekki flókið. Börn fengu hér kerti og spil áður fyrr og voru alsæl. Það þarf ekki mikið til að gleðja Sögu og Leu. Það veit ég.
En að díla við það sem á undan er gengið hjá Dóra er allt annar handleggur. Og þá tala ég um ákveðna aðila sem er búnir að eyðileggja líf fólks. Jafnt barna sem fullorðinna. Það sýnir bara hversu fullorðið fólk getur lagst lágt og hagað sér eins og ofdekrað 5.ára gamalt. Því skynsemin er því miður ekki meiri. Þetta snýst um hefnd, en ekki hvernig börnunum líður. Þetta er sorglegt og þú veist sko ekki innan við helming af því sem ég segi þér Hulda mín. Og ég er að tala út frá Dóra núna. Samskipti okkar Sigga eru góð. Ég tala betur við þig seinna Hulda mín, þannig að þú getir virkilega gert þér grein fyrir hver staðan er.
Klára þetta á tilvitnun:
KONUR ERU HRIFNAR AF ÖLLU EINFÖLDU---TIL DÆMIS KARLMÖNNUM
Bæti annari við í gamni:
FULLORÐNIR----ÞAÐ ERU BÖRN SEM ERU ÞROSKAHEFT............
|  |
  |  |  | Hulda Rós November 26, 2008 04:29 PM PST
Já og svo gleymdi ég að svara spurningunni að auðvitað fylgist ég með og hef rætt fram og til baka um þennan borgarafund, því ekki hefur verið talað um annað en kreppuna og ástandið í einum áfanganum hjá mér... og gott dæmi um það er að ritgerðarspurningin í lokaprófinu hljómar eitthvað á þá leið að lýsa íslandi dagsins í dag með áherslum á menningarhugtakið..fræðilega að vísu, en engu að síður fjallar þetta allt saman um krepputalið og pólitík...
Ástandið hefur áhrif hvar sem er í dag og allir sogast með í umræðuna og kreppubóluna, sama hvort þeir tóku lán eða misstu vinnuna eða ekki...
Ég hugsa að ég horfi líka á næsta borgarafund. |  |
  |  |  | Hulda Rós November 26, 2008 04:23 PM PST
Já, sumir hætta líka að reykja í kreppunni hef ég heyrt, allavega tvær sem eru með mér í náminu hafa valið þá leið. Með þeim sparnaði er hægt að kaupa mjög fínar jólagjafir til dæmis.. það er fljótt að koma saman.
Ég og Friðjón erum t.d. að spara með því að borða hafragraut og hrísgrjón marga daga í röð og okkur líður ágætlega :-) |  |
  |  |  | Name November 26, 2008 01:27 AM PST
Hulda mín. Það svo vill nú svo til að þessi góði maður sem ég er gift, er ekki menntaður. Hann er búinn að vinna á krana í yfir 30.ár. Hvernig í ósköpunum er hægt að finna vinnu þegar enga vinnu er að fá. Svo þarf að borga meðlag með 5. börnum á mánuði og það gera 120-130.000, fyrir utan eðlileg gjöld. Þetta segir sig sjálft. Við þurfum samt að hugsa um börnin okkar, þó ríkið taki meðlag. Við höfum reglulega haft þau hjá okkur, en erum samt að borga með þeim í leiðinni til hins aðilans. Þú getur að sjálfsögðu ekki sett þig inn í svona dæmi. Þú ert ekki skilnaðarbarn, né hefur átt barn. Þau kosta sitt blessunin. Eins og ég segi:Fjársjóðirnir í lífinu og það mikilvægasta. Útgjöld þessa heimilis hafa stóraukist. Ég veit hvað ég er að segja því ég fylgist mjög vel með og sé breytingar á matvöruverði frá degi til dags. Ég horfi líka upp á fólk sem ég afgreiði, Mjög dagfarsprútt fólk, sem hefur aldrei skipt skapi og það tekur þvílíkum breytingum við kassann hjá mér. Ég horfði upp á tvo karlmenn í dag skipta skapi á þann hátt að ég hefði aldrei trúað því. Annar er alltaf ljúflingur, en hann var svo brjálaður að hann bauð ekki góðan daginn og hann var kafrjóður í framan af reiði. Þeytti vörunum á kassann, alveg brjálaður. Ég tók þann pól í hæðina að vera jafn kurteis og ég á vanda til. Það er hræðilegt að horfa upp á svona hluti í sinni vinnu. Sérstaklega þegar maður kannast við fólk og það hefur bara sýnt bros og elskulegheit. Fólk er að missa sig, ég finn það í minni vinnu. Þegar fólk getur ekki lengur séð fyrir börnunum, hvað er þá eftir? Það er ekkert eftir. Þá er sjálfsvirðingin farin,og botninum náð. Treystir þessi maður sér að standa í biðröð eftir hjálp? Þetta var og er stoltur maður. Myndir þú standa í biðröð eftir hjálp? Og allir blaðamenn landsins að reyna að ná af þér mynd. Þetta eru æðislegar fréttir. 2500 manns leituðu eftir hjálp síðast, að mig minnir á miðvikudegi. Það þýðir einfaldlega að þrisvar sinnum fleiri eru jafn illa staddir en fara ekki á staðinn. Þetta eru tölulegar staðreyndir. Það er fínt að að vera Davíð og strúturinn. Það var haldin borgarafundur á gær, og ef þú fylgist eitthvað með kæra frænka, þá var þar sagt allt sem segja þarf. Ég fylgdist með honum allan tímann. Annar er boðaður 8.des og ég ætla svo sannarlega að fylgjast með honum líka. Svo ætla ég í lokin að segja spakmæli: DAGINN SEM KÚKUR BREYTIST Í GULL MISSIR LAUNAFÓLK RASSGATIÐ. |  |
  |  |  | Name November 25, 2008 01:42 AM PST
Eg verð nú reyndar að mótmæla jólum þetta árið og afmælum barnanna okkar. Þegar ekki eru til peningar fyrir gjöfum, þá þýðir ekki að pæla í því meir. Ég sagði við Dóra að ég væri tilbúin að standa frammi fyrir mínum dætrum og segja að kannski yrði þetta sama og ekki neitt.
Svona er þetta þegar við stöndum í skuld við greiðsluþjónustu og Dóri fær ekki útborgað. Við þurfum víst ennþá að éta. Og borga húsaleigu, ásamt eðlilegum útgjöldum. Ég segi bara: Ég vona að helmingi fleiri mæti á fund næsta laugardag. Ég myndi gera það ef ég hefði haft efni á setja bílinn á vetrardekk og setja á hann bensín í þokkabót. Og svona er raunveruleikinn. Það er EKKI gaman að ganga betligöngu í bankann. En þetta þarf meirihluti þjóðarinnar að gera í dag og við líka. Æðislegt.
Ég ætla rétt að vona að þessi fífl hverfi af sjónarsviðinu. Með Davíð í farabroddi, sem hefur gert grín að fátæku fólki hér á landi í gegnum tíðina. Hann er algjörlega úr tengslum við raunveruleikann. Hann er sennilega ennþá að hampa hinni frægu Bermuda skál, sem hann gerði blindfullur fyrir framan alþjóð á sínum tíma. En honum var fyrirgefið það, því Davíð kann jú að tala og gat talað sig út úr því. En nú hefur hann náð botninum. Ég mun ekki gráta hann. Ég get hinsvegar hugsað mér að fella tár yfir fjölskyldum í landinu, sem eru nú reyndar að flýja í tugatali, í von um atvinnu, til að geta keypt jólagjafir fyrir börnin þetta árið. Þetta er staðan í hnotskurn og það þýðir ekki að líta í hina áttina og segja:þetta er ekki mér að kenna! Drögum þessa menn til ábyrgðar alla saman. Það eru um 30 menn sem steypa þjóðinni á hausinn. Og ég er að tala um börnin okkar. Þau borga sukkið. Ef þið Friðjón verðið svo lánsöm að eiga börn þá er ríkið búið að afhenda þeim 10-20 milljóna skuld í vöggugjöf. Tölur eru á reiki, því enginn virðist geta svarað. Vilt þú að barnið þitt fái þetta í vöggugjöf? Ég bað ekki um að Saga og Lea borguðu einkaþotur, glæsivillur, starfslokasamninga upp á hundraðir milljóna, snekkjur, flugfélög, Elton John o.s.fr. Ég minnist þess ekki að ég hafi verið látin vita að börnin mín borguðu þetta í framtíðinni. En kannski er ég bara svona hrikalega einföld? Spurning?
|  |
|
|