|
Monday, December 01, 2008
Ég elska þegar ég kveiki á fyrsta aðventukertinu.
og þegar ég byrja á að skila skólabókunum aftur á bókasafnið...
þá veit ég að jólin og rólegheitin nálgast.
Posted at 04:10 pm by rosin
 |  |  | Name December 4, 2008 04:00 AM PST
Það sem skiptir mestu máli er að trúa á sjálfan sig. Ég er búin að tala og held áfram að tala við mínar dætur og geri þeim grein fyrir fermingunni. Ég mun ekki taka þátt í því ef hugur fylgir ekki máli. Ég er ekki fylgjandi því að þær fermist svona ungar.
Svo einfalt er það. Þetta er nefnilega þannig að ósjálfstæðum einstaklingum er gert að fermast, bara út af hefð. Kirkjan fattaði rétta aldurinn, því þú ert á mörkum og mjög tvístígandi. Þetta er bisness. Börn fermast fyrir gjafir. Það er staðreynd. Þetta er hræsni. Og sem verra er, hvað eiga greyin sem eiga fátæka foreldra að segja við bekkjarsystkinin sín?? Því þau spyrja: Hvað fékkstu í fermingargjöf? Tökum sem dæmi að barnið segi:Ég fékk rúm. Og hinn aðilinn. Vááá maður þetta er hallærislegt, ég fékk sko hest og reiðtygi og reynar ferðatölvu, og líka svona smá sjónvarp. Mannfólk á að fermast, ef það vill, allavega 20.ára, því þá hefur það sjálfstæða skoðun og er ekki þröngvað af samfélaginu að taka þátt í þessu. Þetta er ekki rétt að mínu áliti. Þú átt ekki að binda þig þig við hefðir sem segja:Gerðu þetta og gerðu hitt. Ég hefði ALDREI á sínum tíma látið ferma mig miðað við hugsun mína í dag. Aftur á móti bið ég bænir með dætrum mínum, en það er annað. Þú sem einstaklingur á barnsaldri átt ekkki að vera undir þrýstingi frá samfélaginu að þú ÞURFIR að gera þetta. Því þegar upp er staðið þá vitum við að sjálfsögðu út af hverju við létum ferma okkur.
VIÐ FÁUM ÆÐISLEGAR GJAFIR:
Ég held nú reyndar að jesús hafi ekki alveg haft það í huga í upphafi. Ég veit allavega að í minni fermingu var guð hvergi nálægt, það var bara ég og mínir, en ég fann ekki neitt gagnvart guði eða jesú. Ég vildi bara komast sem fyrst heim og reyna að leika mér við aðra krakka. Og þess vegna mæli ég með að fermingu sé ekki þröngvað upp á börn. Eins og kirkjan hefur gert. Ef barn ákveður að fermast ekki, þá verður það fyrir aðkasti. Hvað er að í þessu þjóðfélagi? Erum við virkilega ennþá á nornaveiðum? Ef eitthvað er út af vananum þá nennir ennþá fólk að tala um það. Ég meina Hörður Torfa þurfti að flýja land á sínum tíma því hann VOGAÐI sér að vera hann sjálfur. Mikið ofboðslega á þetta fólk virkilega bágt. Hefur hann verið kynferðisafbrotamaður? Nei. Hefur hann gerst sekur um sifjaspell? Nei.
Og ótrúlegt en satt, mig rekur ekki minni til þess að samkynhneigður einstaklingur hafi verið dæmdur fyrir svona hluti. Það er bara maðurinn í næsta húsi með sína fínu fjölskyldu og háskólakennari jafnvel. Það er ágætt þegar fólk labbar í gegnum lífið með prikið í hendinni og einblínir í eina átt. Áttirnar eru nefnilega fjórar. Og það er yfirleitt fólkið sem þú síst hefur álit á sem stendur upp úr. Það er heiðarlegt. Kveðja kæra frænka.Lóa |  |
  |  |  | Hulda Rós December 2, 2008 12:32 PM PST
Ég held að það sé allt í góðu með jólatréð ef Sögu og Leu er sama. Annars erum við með eitt pínu lítið sem kostaði heilar 200 krónur í Smáralind. Það flikkar heilmikið uppá.
Ég þori varla að fara út í jesú umræðuna. Ég hef hugsað svo mikið um þetta að það er ekki fyndið. Ég veit alveg að ég er ekki bókstafartrúar og er ekki að skilja svoleiðis trúarbrögð. Ég myndi sennilega heita "trúleysingi" í símaskránni ef allir vissu hvað ég hef nú sagt um kristna trú, þunglamalegt umhverfi kirkjunnar eins og það er hjá okkur og svo framvegis. Stundum sé ég líka eftir því að hafa fermst fyrir alla pakkana, nánast alveg sama um allt hitt og tilganginn. Allavega var ekki margt huglægt að baki, því miður. Það er margt gallað í kerfinu. Ég veit líka alveg að biblían er skáldskapur, hún er það allavega að mínu mati en þó á köflum eins og skáldsaga með fallegum boðskap.
Svo les ég frekar Hávamál og lifi samkvæmt þeim gildum ef ég get...
...Hins vegar get ég ekki að því gert að stundum þegar ég er í kirkju þá upplifi ég þessa yfirþyrmandi og þægilegu slökun sem er svo ótrúlega góð tilfinning. Sérstaklega þegar ég og pabbi förum í jólamessu eins og við höfum gert síðustu árin. Það er eitthvað við það, er það trú og heilagur andi?
Ég hef líka tamið mér speki ömmi.. að trúa mest á sjálfan sig, og hvað er það annað en trú á það góða og sterka í manni sjálfum? Það er trú á mátt. |  |
  |  |  | Name December 2, 2008 02:39 AM PST
Ég elska það líka. Það er bara ljúft. Er búin að setja jólaljós í glugga og jólahús með ljósi, ég á 4. hús. Skreyta og hafa gaman. Jólin eru barnanna og ég ætla ekki að hafa jólatréið í ár, því það er ansi tómlegt að sitja yfir jólin við tvö og engin börn. Þannig að jólatréið verður áfram á háaloftinu. Það er hvort eð er enginn til að skreyta, og Þ.a.e.s. engin börn, að skreyta og þegar það er ekki þá er ekki eins gaman að jólunum. Ekki nærri eins. Það er allt öðruvísi. Ég sagði líka sólargeislunum að það yrði ekki tré í ár og þeim fannst það í góðu lagi. Þannig að allir eru sáttir þessi jól. Ég get ómögulega haft unun af að horfa á jólatré þegar börnin mín eru ekki með mér. Og mér finnst fáránlegt að setja það upp kannski 4. daga um áramót. Eða hvað fyndist þér? Ég er ekki jesúsinnuð. Sorry.
og trúi frekar á jólalög Baggalúts heldur en bókina. Og það verður svo að vera. Og þannig hljómar nú sagan af því þegar hann jesús kom heiminn í. Og svo fékk hann í þokkabót eitthvað oriental jurtasull, ekki skrýtið að maðurinn hafi verið SKY HIGH eftir allt þetta dæmi. Hann sveif yfir jörðu. Auðvitað var hann heilagur. En samt með allri bestu tækni í dag hefur enn ekki verið hægt að lækna sjúka. Allavega ekki verið hægt að ráða bót á blindu og krypppu og dvergum og heyrnalausum, né mállausum. Hvursu langt var þessi maður kominn sem læknir? Hann er eins og Gunnar í Krossinum í dag. Sá maður heldur virkilega að það sé hægt að lækna samkynhneigða. Maður gæti spurt sig hvort hann sé fæddur aftur í miðöldum. Seinast þegar ég vissi er þetta fólk eins og ég og þú, og hefur nékvæmlega ekkert gert af sér. Það sýnir oft ábyrgari hegðun af sér heldur en þetta svokallaða normal fólk í þjóðfélaginu. Og það hefur nú fólk þurft að viðurkenna, þó það sé eitthvað homofobia sinnað. Þetta fólk á fjölskyldur, börn ættingja og vini, og merkilegt nokk heldur jafnvel grillpartý og faðmar ættingja, börn og vini. Lífið er ótrúlegt. Ef maður er þokkalega fordæmalaus, eins og ég hef alltaf verið, þá ertu á lífi. Og getur tekið mannflórunni eins og hún er í kringum þig. Okkur er ekki leyfilegt annað. Góða aðventu kæra frænka og ég vona að Baggalútur hugsi hlýtt til ykkar. Það þarf að rokka aðeins upp jólin. Kveðja úr sveitinni. Lóa frænka. |  |
|
|