|
Ásamt því að hlusta á ótrúlega mikið af góðri tónlist. Ekki bara blús eins og sumir gætu haldið, þó ég hlusti af mikið af blús, djass og fusion þá er samt stór hluti af því efni sem ég hlusta á rokk og indie. Mér finnst líka allt framúrstefnulegt mjög flott. Nýja platan hjá Mugison er algjört æði, elska tilraunamennskuna. Ég hlusta voðalega lítið á dæmigert popp eða svona "main stream" tónlist, þó að ég sé aðeins farin að fikra mig áfram í gamla fönk og soul sem var vinsæl tónlist á þeim tíma, James Brown til dæmis. Svo er auðvitað nýja platan með Emiliönu Torrini í spilaranum en það er kannski ekki svo hefðbundið popp. Ég er líka búin að vera heilluð af country í nokkur ár, hlusta á Dolly Parton Bluegrass plötuna sem er frábær. Ekki á nýju plötuna með Lay Low, mín skoðun að þetta sé hálfgert raul og heillar mig ekki neitt. Hún er voðalega einlæg og allt það en sönnun þess að í dag er nóg að raska öllum ráðandi gildum, jafnvel þó svo að það sé kraftlaust. Semsagt þar ekki einu sinni að geta sungið neitt sérstaklega, bara nóg að raula. Hún hefur oft sagt það sjálf í viðtölum að henni finnist hún ekkert syngja vel eða komast hátt upp eða niður. Þetta er svona póstmóderníski fílíngurinn. Eins og listamenn sem taka eitthvað frægt verk og sletta málningarslettum á það, skera í það, klæða styttur í föt.. eða eitthvað álíka. Gamla er tekið og afbyggt, sett úr samhengi. Lay Low er í raun svipað dæmi í tónlistarheiminum. Hún tekur country, gamli hljómurinn og allt, nema bara öðruvísi rödd einhvernveginn og minni söngur. En aftur að flutningum. Er að flytja niður í miðbæ. Hvað ég er spennt og þarf að fara að pakka. Langar líka að reyna að hitta þessar sætu frænku mínar um helgina. ![]() ![]() |
| Name November 3, 2008 12:50 AM PST ----- Original Message ----- From: sigurjón To: Arnar Lúðvíksson Sent: Friday, October 24, 2008 8:36 PM Subject: Fw: Hugmyndafræðilegar endurskoðanir - algjör snilld ----- Original Message ----- From: Sigurjón Sigurðsson To: sissi32@internet.is Sent: Friday, October 24, 2008 8:41 AM Subject: FW: Hugmyndafræðilegar endurskoðanir - algjör snilld -------------------------------------------------------------------------------- From: Lúðvík Aron Kristjánsson Sent: 23. október 2008 16:49 To: Allir - Járn og Gler Subject: Hugmyndafræðilegar endurskoðanir - algjör snilld SÓSÍALISMI Þú átt 2 kýr. Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra. KOMMÚNISMI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk. FASISMI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk. NASISMI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo. SKRIFRÆÐI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni. HEFÐBUNDINN KAPITALISMI Þú átt 2 kýr. Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein SÚRREALISMI Þú átt 2 gíraffa. Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám. BANDARÍSKA FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð. ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR - Íslendingar Þú átt 2 kýr. Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði. FRANSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár kýr. JAPANSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, „Kúmann“, sem nær miklum vinsældum um allan heim. ÞÝSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar. ÍTALSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að borða. RÚSSNESKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr. Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr. Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr. Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku. SVISSNESKT FYRIRTÆKI Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun. Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna. KÍNVERSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru. INDVERSKT FYRIRTÆKI Þú átt tvær kýr. Þú tilbiður þær. BRESKT FYRIRTÆKI Þú átt tvær kýr. Báðar eru með gin-og klaufaveiki ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Bissnessinn gengur vel. Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það. NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI Þú átt tvær kýr. Sú til vinstri er asskoti löguleg. ÍRASKT FYRIRTÆKI Allir virðast eiga fjölda kúa. Þú segir öllum að þú eigir enga. Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið. Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna... No virus found in this incoming message. Checked by AVG. Version: 7.5.549 / Virus Database: 270.8.2 - Release Date: 20.10.2008 00:00 No virus found in this outgoing message. Checked by AVG. Version: 7.5.549 / Virus Database: 270.8.2 - Release Date: 20.10.2008 00:00 | ||
| Name November 1, 2008 03:21 AM PDT Hæ elskan. Ég ætla ekki að tala um gagnrýni á tónlist. Því það er einfalt hjá mér. Það er frá ABBA, til Ninu Hagen, pönkdrottningu dauðans, og svo til allra. Ég er manneskja sem getur klikkast á gólfi yfir Metallicu, en líka klikkast yfir ABBA og síðast en ekki síst uppáhaldinu JANIS JOPLIN. Enda ekki skrýtið að nánir vinir segja að ég sé skrýtin. Gangi þér vel í flutningum. Þetta eru yndislegar myndir af skvísunum. Það er komið eitthvað gelgjuhljóð í Sögu. Hún hagar sér þannig. Enda mjög eðlilegt. Hún er að sýnast. Kveðja úr sveitinni. Lóa frænka. | ||
| Leave a Comment: |