Entry: Nýji staðurinn Monday, November 10, 2008



Það er lúðrasveit að æfa í næsta húsi við blokkina sem ég bý í hérna á Lindargötunni. Þannig að þegar maður er inni á baðherbergi þá heyrir maður einhverja svakalega lúðrasveitartónlist. Þegar Friðjón var að pissa áðan langaði honum alveg svakalega að dansa aðeins með gömlum Beethoven slagara.

Bara eitt dæmið um það hversu líflegt og skemmtilegt er að búa hérna. Tvö skref til hægri og maður er kominn í Regnbogann. 4 skref til viðbótar og maður er kominn á Rósen...

Beautiful!

Fór einmitt á tónleika með KK á laugardaginn með mömmu og pabba. Þeim leyst vel á nýja Rósen.

Svo er magnað hversu rólegt er hérna um helgar...ekki eins og maður búi í miðbænum. Það var helmingi meiri hávaði á Eggertsgötunni, í flugvélunum sem flugu yfir og partýum og bara milli íbúða.

Lúðrasveit eða aðrar tónlistaræfingar á kvöldin eru alls ekkert til ama.

Svo er útsýni yfir sjóinn og ég búin að hlaupa meðfram Sæbrautinni nokkrum sinnum. Allt bara vel heppnað eftir annars brösulega flutninga og margt leiðinlegt sem kom upp á. Það er nú búið og gleymt, man það ekki lengur, sit bara hérna og hugsa hvað það verður æðislegt þegar þessi verkefni eru búin og jólin komin...


   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments