Entry: Erindi á ráðstefnu Friday, November 14, 2008



Nú sit ég hérna heima með kaffibolla við hönd eins og svo oft áður, að undirbúa erindi sem ég flyt á minni fyrstu ráðstefnu á eftir.

Það tel ég nokkuð merkilegt, þar sem ég skrópaði gjarnan í þeim tímum í framaldskóla þar sem maður þurfti að tala fyrir framan bekkinn. Reyndar man ég bara eftir einu skipti, en mikið fannst mér ég vera mikill auli að tilkynna mig veika.

Núna er ég hinsvegar orðin pollróleg yfir þessu enda mikil æfing átt sér stað fram að þessu, bæði í að syngja uppi á sviði og flytja fyrirlestra í Háskólanum.

Engu að síður er þetta fyrsta ráðstefnan svo að ég er frekar spennt.

Ég er semsagt að fjalla um möguleikana sem fylgja því að stofna alvöru Listasafn á Höfn í Hornafirði og tengja það Svavari Guðnasyni. Þetta verður að vera hnitmiðað svo ég er í því að stytta núna.

Set kannski inn helstu punktana um þetta seinna. Nú ætla ég að handskrifa hjá mér stikkorð. Annars ætla ég að reiða mig á kunnáttuna í staðinn fyrir blað með texta í þetta skiptið, vonandi gengur það vel.

   3 comments

Name
November 20, 2008   02:24 AM PST
 
Hæ Hulda mín.
Svavar Guðnason er tengdur jöklunum, náttúrinni, sjónum en síðast en ekki síst sjálfum sér. Það þarf mikinn kjark að taka sig upp á þessum árum og fylgja sjálfum sér. Talandi um að koma úr litlu sjávarplássi sem var ekki einu sinni tenging við þjóðveg. Bara jöklar allt í kring. Hvernig ætlarðu að sleppa??????
Og hvernig geturðu vogað þér að sleppa þegar að þarf að færa lífsbjörg í bú.
Þú ert aumingi. Punktur.
Þu ert ekki maður sem getur unnið með höndunum. Þú ert ekki gjaldgengur í litlu sjávarþorpi sem byggir afkomu á hreysti karlmannsins.
Enda varstu alltaf öruvísi og til hliðar frá öðrum og fékkst líka að vita það.
Það þarf mikinn kjark að fylgja sannfæringunni, og það tókst. Það tókst með mikilli trú á sjálfan sig og að ryðja braut, þó þú hafir ekki gert þér grein fyrir því þá. Sennilega hefur einhver bankað í bakið á þér,
Látum þar við sitja í bili. Kveðja úr sveitinni. Lóa frænka.
Hulda Rós
November 18, 2008   09:31 AM PST
 
Já mér heyrist það nú bara vera ansi gott..harðfiskur í lokin, vel gert!
Valdís
November 18, 2008   04:32 AM PST
 
hehe já, ég hélt nú kynningu um Höfn og Ísland á króatísku fyrir bekkinn minn um daginn. Kannski ekki hægt að miða það saman við erindi á ráðstefnu í mastersnámi. Sat upp á borði og gaf öllum harðfisk í lokin hehe.. kannski aðeins afslappaðara. En samt.. það var minn fyrirlestur þessa önnina :)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments