|
Eddan var á sunnudaginn. Mér fannst þetta ágæt verðlaunaafhending fyrir utan kynnirinn. Hún er svo innilega ómannleg í framkomu að mínu mati. Svo er líka frekar sérstakt hvað það er alltaf sama fólkið sem vinnur...og besti leikarinn er..Hilmir Snær! Allir hissa? Egill Helgason fékk reyndar 3 Eddur, hann er greinilega maður fólksins og fjöldans. Miðað við að hann klúðraði viðtalinu við Jón Ásgeir eða sýndi ef til vill of mannlega framkomu og missti sig, þá veit ég ekki hvort ég taki mikið mark á þessum viðurkenningum. Útsvar besti skemmtiþátturinn...var það einhverntímann skemmtilegur þáttur? Spurning um skoðanir, ekki endilega gæði. Jæja svona er margt skrítið og Eddan er auðvitað verðlaunaafhending á litla Íslandi. Endurspeglar oft klíkuna og fólkið sem hefur völdin í menningunni. Hverjir mega vera með og hverjir ekki. Þorgerður Katrín á auðvitað alltaf að kynna einhver verðlaun. Svo eru það hinir og þessir sem eru almennt nógu skemmtilegir. Setjum líka fínan brag á þetta og fáum forsetann til að mæta. Svo kemur Balti og segir allt sem enginn þorði að segja... hann var að mínu mati skemmtilegastur og gáfulegastur..með því að þora. Var reyndar sammála öllu því sem sagt var um íslenska framleiðslu á sjónvarpsþáttum. Það má halda því áfram. Skapa störf fyrir leikarana og alla sem starfa í kring um einn svona þátt. |
| Hulda Rós November 20, 2008 02:02 PM PST Þetta er samt virkilega leiðinlegt með að Dóri missti vinnuna. Vonandi finnið þið nýjar leiðir. Búin að heyra svo margar slæmar sögur af vinnumálum hérna að það er alveg sorglegt. Þá líka allskonar fólk í ýmsum stöðum, það virðist enginn sleppa með það. Mátt ekki misskilja mig, mér finnst bara vera einföldun að kenna einhverjum einum flokki um allt. Þó það sé pottþétt huggun fyrir einstaklinga að geta sett sökina á einhverja aðra til að leita skýringa á ástandinu. ...því ekki skil ég það öðruvísi en að öll þjóðin (þá í heildarmynd sinni, ekki allir einstaklingar) hafi sukkað óhóflega síðustu ár. | ||
| Hulda Rós November 20, 2008 01:40 PM PST Þetta voru nú ekki persónulegir vinir mínir, enda vingast ég ekki við stjórnmálamenn sem ég þekki ekki meira en af sjónvarpsskjánum. Það er misjafn sauður í öllum flokkum... ...ég treysti mér ekki til að fara á Alþingi og stjórna hlutunum. Það er rosalega gott að hengja næsta mann og kenna um öll vandamálin... ...líka er stundum hægt að líta í eigin barm og hugsa: Hvað get ég gert til þess að lifa góðu lífi. Hvað get ég gert til að bæta mitt líf. Nú, ef stjórmálin eru svona slæm er hægt að skoða það að flytja úr landi..athuga hvort allt yrði þá betra. Ef við hugsum um okkur sjálf og einbeitum okkur að okkar eigin framtíð þá trúi ég því fastlega að maður getur lifað góðu lífi, óháð kreppu eða öðru bulli. Þess vegna hef ég verið sjálfstæðiskona, eða svona hugsunarinnar vegna... Ég ætlast ekki til þess að samfélagið fleyti mér fram eða láti mig lifa auðveldu lífi. Ekki vegna þess að neinn af þessum mönnum séu vinir mínir að dýrðlingar með meiru... ..ég segi það enn og aftur að ég hef t.d. oftast verið sammála Steingrími J. Ég er hinsvegar ekki viss um það að hann, einn og sér, hefði getað bjargað Íslandi úr alheimskreppunni og "eyðslu-geðveikinni" sem fólkið í landinu tók þátt fullan þátt í. Eftir allt þá snýr þetta mikið að manni sjálfum. Aðal kreppan í landinu snýst að sjálfsmyndinni sjálfri...af hverju er svona fyrir mér komið? Kannski er ekkert alltaf allt öðrum að kenna... þú skapar þína framtíð sjálfur... stundum getur hún orðið slæm eins og raunin varð hjá nokkrum útrásarvíkingum og stjórnmálamönnum sem þurfa nú að lifa með ákvörðunum sínum... Í raun er samt lífið sjálft yfir pólitíkina hafið. Það er allavega mín skoðun. | ||
| Name November 20, 2008 03:15 AM PST Er reyndar sammála að eini maðurinn sem talaði af viti var Baltasar, því hann virkilega reyndi að lýsa ástandinu í þjóðfélaginu eins og það er. En fyrir utan það þá var nákvæmlega EKKERT. Ólafur Ragnar var bara mör, ef ekki blóðmöör. Það hefði þurft Dorrit í íslenskri ull til að peppa upp dæmið(fyrir utan hvað hún er sææææt) Svo sykursæt. Ég veit ekki betur en Ólafur hafi lýst því yfir fyrir viku síðan að hann væri tilbúinn að lækka launin við sig. Íslenska þjóðin stynur, ég meina, hann á konu sem gæti séð fyrir honum. Auðvitað er hann tilbúinn að lækka launin. Ég meina, hann gæti farið úr 1.500,000 á mánuði í t.d 1,200,000 á mánuði. Þetta er náttúrulega geðveik mikil lækkun. VÁ ég er að hugsa um að klappa. VEIIIIIIIIII. Dóri er búinn að missa vinnuna og við vitum ekki um framhaldið. Þökk sé Sjálftstæðisflokknum og auððkýfingum sem flúið hafa land með milljónir á milljón ofan. Voru þetta VINIR ÞÍNIR Hulda????? Ég get ekki séð það fyrir mér. Þetta eru menn sem hugsa um rassgatið á sjálfum sér og skeyta engu um þó þeir taki 300.000 manna þjóð í rassgatið. Við erum jú bara eins og eitt lítið úthverfi í milljónaborg. Við erum lítil. Við erum ekki stór. Og það verður við að viðurkenna fyrir framan alþjóðum heims nú. Að við létum gera okkur að fíflum. Nú erum við betlarar, og meira að segja Færingar láta okkur hafa lán. Þessa litla þjóð. Þessir útrásarmenn eru búnir að sigla þjóðarskútinni í kaf og meira en það. Niður með helv... Sjálfstæðisflokkinn, Upp með þjóðina og þjóðaratkvæðagreiðslu. NÚNA. Kveðja Lóa frænka | ||
| Leave a Comment: |