|
...breytingar eru alltaf af hinu góða öðru hverju... |
| lovísa frænka May 7, 2009 03:27 AM PDT Það eru hlutir sem við getum aldrei útskýrt í lífinu og okkur er ekki ætlað það. Ég veit að pabbi fylgist með mér, en ég veit ekki hvernig ég get útskýrt það, hvað þá að nokkur trúi mér. En þetta eru bara hlutir sem maður veit. Það er ofboðslega mikilvægt að halda í þau gildi sem hafa gert okkur eins og við erum. Og hlusta ekki á fólk sem kaupir einkaþotur, heldur hlusta á fólkið. Því eftir alla geðveikina þá erum það víst við sem þurfum að borga og börnin mín og börnin þín. Það væri góður hlutur ef fólk myndi VIRKILEGA opna augun einu sinni á ævinni. Að eiga eignir er ekkert, en að eiga er annað. Gamla máltækið sannar sig alltaf... Þú kaupir ekki hamingjuna í gegnum peninga.....Og verði þeim að góðu þessum mönnum sem áttu sinn þátt í því að setja Ísland á hausinn. Og ótrúlega skrýtið, þvílík tilviljun, þeir eru allir sjálfstæðismenn. Húrra, húrra, húrra. Þetta minnir á veldistíma hitlers fyrir ekki margt svo löngu. Hann ákváð að eyða vandanum en við fórum offari hina leiðina. Hann sá ofsjónum yfir því hvað Gyðingar ættu mikla peninga. Þar fóru 6. milljónir í gasið. Ég sé reyndar ofsjónir enn þann dag í dag yfir gegndarlausu bruðli og geðveiki sem enginn normal maður botnar í. Þessir menn eiga að sjálfsögðu að sæta ábyrgð. Ef þú ert tekinn fyrir fíkniefnasmygl,+fangelsi. Ef værir dæmd fyrir skattssvik+fangelsi. Ef þú brýtur af þér gagnvart börnum, þá ferðu bara á heilsuhæli í smátíma. Fínt... ekki satt. Mér hefur alltaf þótt mjög undarlegt í þessu landi að maður sem nauðgar dóttur sinni og skemmir jafnvel fyrir lífstíð skuli jafnvel fá skilorðabundinn dóm. Þessir menn úti eru taldir jafnt sem morðingjar. Enda eru þeir ekkert annað. Nóg um neikvætt tal. Héðan er allt fínt og öllum líður vel. Hafðu það gott elskan og okkar hjartans kveðjur til ykkar allra. Lóa frænka | ||
| Leave a Comment: |